Our SHOP

  • Akasíu hunang er milt, sætt og storknar ekki í stofuhita. Litur hunangsins getur verið mismunandi frá ljósgulum yfir í rafgullið og kristallamyndun í hunanginnu er hæg. Hunangið inniheldur meiri ávaxtasykur(frúktósa) en glúkósa og hentar betur en sykur fyrir sykursjúka. Hreint hunang kristallast með tíma og hægt er að losna við kristalla með því að hita það upp í 40 C. Létt og frískandi akasíu hunang hentar sérstaklega vel á hvítt brauð og sem sætuefni í kaffi, te, grauta og ávaxtasalöt.
  • Paprikur fylltar með kjöti og hrísgrjónum í tómatlegi, þær fara sérstaklega vel með kartöflumús. Aðeins þarf að hita þær upp, en við mælum með að setja hann í eldfast mót og setja vel af Parmesan eða öðrum bragðsterkum osti og skella þeim svo í ofninn.
    Næringargildi per 100 g
    Orka 358 kJ 86 kcal
    Fita 3,7 g
    þar af mettuð 1,2 g
    Kolvetni 7,7 g
    þar af sykur 1,2 g
    Trefjar 1,1 g
    Prótein 4,8 g
    Salt 1,08 g
       
  • Þessi réttur á sér langa hefð en uppruni hans er kenndur við suður-ameríska frumbyggja. Vinsældir Chilli con carne hafa vaxið með árunum og er rétturinn borinn fram um allan heim. Í Mexíkó er hann borinn fram með soðnum baunum, í Asíu með soðnu grænmeti, á Ítalíu með pasta og í Slóveníu með kartöflum. Þarf bara að hita það upp og njóta

Title

Go to Top